Tölum saman um framtíðina
Framhaldsskólar - Samtal

Tölum saman um framtíðina
Nú, á tímum mikilla umbreytinga og hraðrar tækniþróunar, viljum við á ný skapa rými til að staldra við, hlusta og tala saman.
Í október bjóðum við til þjóðarsamtals: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? https://talasaman.is/
Ungt fólk leiðir samtalið en þeim sem yngri og eldri eru, er boðið að taka þátt, til að skapa raunverulegt samtal kynslóða. Um allt land mun fólk hittast, hlusta hvert á annað og deila því sem skiptir okkur máli: vonum okkar, gildum og hugmyndum um framtíðina.
Kannski breytum við ekki heiminum á einum degi en orð eru til alls fyrst og vonin vex þegar við tökum virkan þátt.
Laugardaginn 10. október hittumst við í skólum og öðrum samkomustöðum og tölum saman undir handleiðslu ungra lóðsa.
Hver geta tekið þátt?
Öll, óháð aldri. Fólk á aldrinum 16-30 ára getur skráð sig sem lóðs og fengið þjálfun í að leiða samtal á þínu borði/þínum hring.
Hvað er lóðs?
Ungur leiðbeinandi sem stýrir samtali. Lóðs leiðir ekki fólk að niðurstöðu heldur hjálpar öllum við borðið að hlusta og láta rödd sína heyrast.
Hvað er borð/hringur?
Hópurinn sem þú tilheyrir og tekur þátt í samtali við.
Hvernig tek ég þátt í Samtali?
- Þú skráir þig hér á vefnum og svarar um leið fáeinum einföldum spurningum.
- Þú færð boð í Samtal sem fram fer 10. október í nágrenni við þig.
- Þú tekur þátt í Samtali á þeim stað í þeim hring/borði sem tilgreindur er í boðinu.
- Þú lýkur þátttöku með því að svara rafrænt spurningum.
Hvað ef ekkert samtal er í nágrenni við mig?
Þá hvetjum við þig til að skipuleggja þitt eigið samtal og hjálpum þér af stað.
Upplýsingar eru frá www.talasaman.is



